16. febrúar 2007 klukkan 10:40
Jæja góðan daginn! (varúð - ofur löng færsla)
Aðal bloggið mitt á david.aviation.is er eitthvað bilað því miður, það var víst skipt um netþjón og þar er bara gamla bloggið mitt frá 2004! Ég er reyndar búinn að nota tækifærið og það er ótrúlega gaman að eiga svona "dagbók" frá því hvað maður var að gera... Ásgeir Bjarni litli frændi fæðist, Stúdentsprófið, Flugferðir, Ákveðið að fara í flugnám í Oxford og svona... Alveg frábært!
Þannig það þýðir ekkert að slaka á í bloggi þótt að síðan sé niðri tímabundið, en Björgvin góðvinur minn er í lokaprófum í bóklega náminu í Oxford núna, þannig skiljanlega hefur hann lítinn tíma til að fixa bloggið mitt.
En hvað hefur drifið á daga mína síðustu 2 vikur... Ég fór til Íslands og lét draga úr mér endajaxl, tannlæknarnir hérna úti vildu nefnilega svæfa mig og leggja mig inn á sjúkrahús í sólarhring og eitthvað, bara aðgerð! Það hefði verið töluvert dýrara! Þannig ég skellti mér til Egils tannlæknis og hann kippti tönninni úr á 2 mínútum! Algjör snillingur þar á ferð.
Svo fór það örugglega ekki framhjá mörgum að þegar ég var heima hætti Pabbi hjá Strætó! Það er búið að vera stór hluti í mínum lífi, aðeins búinn að taka þátt í þessu með honum, vinna á sumrin og spila undir hjá strætókórnum. En það eru spennandi tímar framundan, og eins og Bretinn myndi segja: "Watch this space." Í augnablikinu eru mamma og pabbi bara í 3 vikna sólarlandaferð í Tenerife! Usssss
Þegar ég kom aftur til Englands var brunað til London, föstudagskvöld var notað til að djamma í Oxford með Sveini Akerlie, Björgvini, Sveppa, Kalla, Sibba og fleirum góðum. Alltaf gaman að koma til Oxford. En mál málanna voru kveðjutónleikar The Acoustic Set! Hólí mólí, þvílík SNILLD! Ofantaldir Íslendingar komu einnig til að verða vitni að stórviðburðinum. Þór og fjölskylda eru að fara að flytja til Nova Scotia í Kanada og Við náttúrulega flutt til Newcastle, þannig kominn tími til að slíta samstarfi sveitarinnar. Það var pantaður helmingi stærri pöbb, sem TROÐFYLLTIST, stemmningin var rafmögnuð, svo rafmögnuð að rafmagnið fór af ljósunum 4 sinnum, en við héldum bara áfram, enda ACOUSTIC! Við vorum klappaðir upp aftur og aftur og aftur, fólk vildi ekki að þetta myndi enda, og á endanum þurfti eigandi barsins að skerast í leikinn og allt tók þetta enda. Mikið var um faðmlög og jafnvel stórir fullorðnir menn sáust fella tár! Mögnuðum kafla þar með lokið í mínu lífi.
Ég er búinn að læra ótrúlega mikið af þessu samstarfi mínu, búinn að kynnast topp tónlistarmönnum í gegnum Þór, búinn að læra hvernig á að spila á píanó í hljómsveit, það snýst ekki alltaf allt um píanóið :) Nú er ég að koma mér upp hægt og rólega heimastúdíó, ætla að mastera blús og jazz á næstu árum. Við tókum upp nokkur lög á æfingu The Acoustic Set, ef einhver hefur áhuga að fá þau um að gera að láta mig vita.
Það var svo vaknað á sunnudaginn, ennþá brosandi út að eyrum. Þá var brunað alla leið norður til Newcastle, því það var aftur komið að vinnuviku strax á mánudagsmorgun. Er búinn að fara til Stansted, Belfast tvisvar og Malaga tvisvar. 22° og sól í Malaga í gær, væri alveg til í að stoppa þar aðeins lengur!
Í gær var svo síðasti vinnudagurinn og 3 daga fríhelgi framundan. Við Richard skelltum okkur á The Hyena, sem er svona comedy grínklúbbur í Newcastle. Þar voru komnir 3 ótrúlega fyndnir uppistandarar frá Liverpool, Kanada og Ástralíu. Við köfnuðum næstum því úr hlátri, þvílík snilld. Mennirnir eru mikið búnir að vera að ferðast og því var mikið um flug-grín í uppistandi þeirra. Ahahahahahahaha... Hef ekki brandarana eftir, þetta var svona "You had to be there" moment. Eftir það var kíkt á nokkra helstu klúbba Newcastle, en það er vetrarfrí í skólunum hérna þannig allir stúdentarnir eru farnir eitthvað, þannig það var bara tómt í bænum! Skrítið á fimmtudagskvöldi.
Ég ætla bara svo að taka því rólega núna um helgina, er að fara í göngutúr núna og ætla svo að skella mér í sund og ræktina. Á meðan er Ýr að vinna í dag og á morgun. Hún er núna að nudda í hlutastarfi hjá snyrtistofu í miðbænum sem heitir Floataria, en var í viðtali fyrr í vikunni hjá flottustu snyrtistofunni í bænum, City Retreat, fyrir fullt starf, og var hún boðuð í annað viðtal í næstu viku. Spennandi, og vonandi fær hún það starf, þá erum við bæði búin að ná takmarki okkur í starfi! Ótrúlega gaman og spennandi.
Ef þú nenntir að lesa þetta allt áttu hrós skilið!